menntastefna

Námskrárvinna í kjölfar nýrra menntalaga 2008

Í mennta- og menningamálaráðuneytinu er nú unnið að undirbúningi nýrrar aðalnámskrár fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á grundvelli laga um þessi skólastig frá 2008. Aðalnámskrá byggir á menntalögum hverju sinni og útfærir stefnu sem löggjafinn markar.

Í almennum hluta aðalnámskrár er kveðið á um hlutverk, markmið og fyrirkomulag skólastarfs. Í námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er lýst nánar hlutverki hvers skólastigs og séráherslum á hverju þeirra. Aðalnámskrá er rammi um skólastarfið og leiðarljós fyrir nemendur og forráðamenn þeirra, kennara, aðra starfsmenn skólanna og skólastjórnendur, fræðsluyfirvöld í sveitarfélögum og aðra starfsmenn í menntakerfinu.

Lesa meira>>

 


Spurt og svarað

Fyrir hvern er leikskólinn?

Öll börn upp að skólaskyldualdri. Leikskólinn er skóli án aðgreiningar og þar hafa öll börn jafna möguleika á umönnun, menntun og uppeldi, óháð aldri, kyni, þjóðerni, andlegri og/eða líkamlegri getu.

Verða breytingar á skólaskyldu nemenda?

Áfram er gert ráð fyrir 10 ára skólaskyldu fyrir nemendur að jafnaði á aldrinum 6-16 ára. Öllum börnum er skylt að sækja grunnskóla.

Breytast próf til starfsréttinda?
Meðal þess sem ýmsir hafa sýnt áhuga er að endurskoða sveinsprófakerfið þannig að nemandi geti lokið hluta t.d. í húsasmíði eða bifvélavirkjun og hlotið þannig réttindi í afmörkuðum hluta þeirrar greinar.
Slíkt hefur verið þróað t.d. í matvinnslugreinum, skipstjórn og vélstjórn. Þróunin á þessu sviði mun ráðast af eftirspurn markaðarins og möguleikum skólanna.

Fleiri spurningar & svör



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.