Framhaldsskólaeiningar
Með lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 tekur nýtt einingamat gildi. Nýtt einingamat í námi á framhaldsskólastigi er samræmt og tekur til alls náms. Það gefur kost á samanburði á vinnuframlagi óháð því hvort námið er verklegt eða bóklegt, innan skóla eða utan. Nýja einingakerfið metur allt nám og vinnu nemenda með einum gagnsæjum mælikvarða, þ. m. t. vinnustaðanám og annað nám sem fram að þessu hefur ekki fallið undir hefðbundið einingamat. Námseiningar í framhaldsskóla eru miðaðar við vinnuframlag nemenda. Til aðgreiningar frá þeim einingum sem hingað til hafa tíðkast í framhaldsskóla kallast þær hér framhaldsskólaeiningar, skammstafað fein.
Lögin kveða á um að fullt nám gefi 60 framhaldsskólaeiningar á 180 daga skólaári, þ.e. að ein framhaldsskólaeining jafngildi þremur vinnudögum nemanda (um 6-8 klst. á dag).
Vinnuframlag nemenda er skilgreint sem:
A. Þátttaka í kennslustund í skóla, óháð kennsluformi (bein kennsla, verkleg o.s.frv.).
B. Starfsþjálfun á vinnustað eða í skóla. Starfsþjálfun/vinnustaðanám er talið með sama hætti og bóknám. Þrír vinnudagar gefa eina framhaldsskólaeiningu, án tillits til þess hvort unnin er yfirvinna þá daga.
C. Heimavinna, verkefni og önnur vinna sem ætlast er til að nemandi sinni utan skóla/vinnustaðar.
D. Áætlaður undirbúningur nemanda vegna prófa og þátttaka í prófum hvort sem er á kennslutíma eða sérgreindum prófatíma.
Í áfangalýsingum er hægt að kveða á um hvernig vinnuframlag nemanda skiptist á milli ofangreindra flokka en heildarvinnuframlag nemenda skal endurspegla fjölda framhaldsskólaeininga (fein.) áfangans. Hvort sem áfangi er verklegur eða bóklegur, símatsáfangi eða áfangi með lokapróf þarf vinnuframlag nemanda að samsvara um þriggja daga vinnu fyrir hverja framhaldsskólaeiningu.
Mynd 1a Mynd 1b
|
Dæmi um skiptingu á vinnuframlagi nemanda í verklegum áfanga |
|
Dæmi um skiptingu á vinnuframlagi nemanda í bóklegum símatsáfanga |
||
|
Verk- þáttur |
Hlutfall |
Verk- þáttur |
Hlutfall |
|
|
A |
85% |
A |
50% |
|
|
B |
0% |
B |
0% |
|
|
C |
10% |
C |
40% |
|
|
D |
5% |
D |
10% |
|
|
Alls |
100% |
Alls |
100% |
|
