Námskrárgerð í framhaldsskólum
-DRÖG-
Ný framhaldsskólalög gera ráð fyrir að gerð námsbrautarlýsinga færist frá menntamálaráðuneyti til framhaldsskólanna. Það þýðir að skólunum er falin eiginleg tillögugerð um fyrirkomulag, samhengi og inntak náms. Í greinargerð með lagafrumvarpinu (Þskj.320 - 286.mál) kemur m.a. fram mikilvægi þess að framhaldsskólarnir fái tækifæri til að nýta sérstöðu sína hvað varðar þekkingu, færni/leikni og hæfni á mismunandi sviðum. Í framhaldsskólum er að finna góða þekkingu á þörfum þeirra sem skólarnir þjóna, bæði nemenda, atvinnulífs, menntastofnana og annarra, og það er nauðsynlegt að nýta þá þekkingu við innleiðingu nýrra laga um framhaldsskóla.
Frá því árið 2007 hefur ráðuneytið unnið að þróun hæfni- og viðmiðaramma um námslok á framhaldsskólastigi. Það er gert í kjölfar breytinga á háskólanámi á Íslandi en allt nám á háskólastig var flokkað á þrjú hæfniþrep árið 2007. Þessi viðmiðarammi flokkar námstilboð á framhaldsskólastigi á fjögur hæfniþrep og er ætlað að auðvelda neytendum að greina lokamarkmið náms og hvaða réttindi þau fela í sér. Enn fremur er rammanum ætlað að auðvelda mat á námi utan skólakerfisins, óformlegu og óformuðu námi. Viðmiðaramminn krefst þess að framhaldsskólar skilgreini nám og námsbrautir á hæfniþrep 1, 2, 3 eða 4.
Viðmiðaramminn og sniðmát að námsbrautum eru verkfæri sem nýtast eiga skólum við námskrárgerð og skipulag námsbrauta. Sniðmátunum er ætlað að tryggja að brautir skili nemanda með hæfni á þrepi 1, 2, 3 eða 4. Þeim er einnig ætlað að auðvelda samanburð milli brauta, auðvelda mat nemenda milli skóla og gefa upplýsingar um skilyrði menntamálaráðuneytis við staðfestingu námsbrauta. Ráðuneytinu er umhugað að nemendur séu vel upplýstir um það nám sem stendur þeim til boða, s.s. skipulag námsins, kennsluhætti, námsmat, hvaða hæfni þeir eiga að búa yfir að námi loknu og hvaða dyr standa þeim opnar.
Menntamálaráðuneytið ásamt framhaldsskólum landsins stíga nú inn á nýjar ótroðnar slóðir, þar sem ný framhaldsskólalög gera ráð fyrir að gerð námsbrautarlýsinga færist frá menntamálaráðuneyti til framhaldsskólanna. Mikilvægt er að gagnsæi ríki í þeirri þróunarvinnu og allir sitji við sama borð.
Ákveðið hefur verið að setja upp þennan vef til að hagsmunaaðilar geti fylgst með þróun þess umhverfis sem dreifstýrð námskrárgerð kallar á. Bæði verða hér almennar upplýsingar sem varða hugmyndafræði og þróun en einnig verða birt gögn sem nýst geta skólum í þeirri þróunarvinnu sem ný vinnubrögð og breyttar áherslur kalla á. Til þess að upplýsingar um stöðu þróunarvinnunnar berist hratt út til skólasamfélagsins verða gögn birt sem enn eru á vinnslustigi.
Endanleg útfærsla verður birt í almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla en gert er ráð fyrir útgáfu hennar á vordögum 2009.
