Kjarnagreinar
Tillaga að útfærslu kjarnagreina - drög
Námskrárútfærsla á nýjum lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 sem kveða á um að stúdentspróf skuli innihalda a.m.k. 45 nýjar einingar í kjarnagreinum, þ.e. ensku, íslensku og stærðfræði.
Kjarnagreinar
Allar brautir til stúdentsprófs skulu innihalda að lágmarki 45 fein. í kjarnagreinum, þ.e. ensku, íslensku og stærðfræði og jafnframt tryggja að nemendur búi yfir lágmarkshæfni.
Þar sem lokamarkmið námsbrauta eru mismunandi er skólum heimilt við skipulag námsbrauta til stúdentspróf að skylda fleiri framhaldsskólaeiningar í bæði kjarnagreinum og öðrum greinum og þar með krefjast meiri hæfni.
Skólar hafa ákveðið val um það hvernig þeir raða skylduáföngum kjarnagreina á þrep en í töflunni hér fyrir neðan er kveðið á um lágmarkshæfni og lágmarksfjölda eininga. Vert er að benda á að sérhæfð stærðfræði sem tengist starfsnámi telst til 2. hæfniþreps.
|
Kjarnagrein |
Lágmarkshæfni |
Lágmarksfjöldi fein. |
|
Íslenska |
3. hæfniþrep |
heildarfjöldi á 2. og 3. þrepi 20 fein, |
|
Stærðfræði og enska |
2. hæfniþrep |
lágmark 5 fein á 2. þrepi |
Samtala verður að ná 45 fein.
Nemendur sem hafa íslensku sem annað tungumál mega velja stærðfræði eða ensku upp á hæfniþrep 3 í stað íslensku. Þeir taka þá lágmark 5 fein á 2. þrepi í íslensku.
Kjarnagreinar - lærdómsviðmið
Í lögum nr. 92/2008 um framhaldsskóla 18. grein segir m.a.:
Til að útskrifast með stúdentspróf frá framhaldsskóla skal nemandi hafa lokið námi með fullnaðarárangri samkvæmt námskrá og námsbrautarlýsingu sem hlotið hefur staðfestingu ráðherra, sbr. 23. gr. Námsbraut til stúdentsprófs skal innihalda að lágmarki 45 námseiningar er skiptast milli náms í kjarnagreinum framhaldsskóla, þ.e. íslensku, stærðfræði og ensku, samkvæmt nánari ákvæðum í aðalnámskrá.
Námsbraut til stúdentsprófs skal innihalda að lágmarki 45 námseiningar er skiptast milli náms í kjarnagreinum framhaldsskóla, þ.e. íslensku, stærðfræði og ensku. Menntamálaráðuneyti gefur út nánari viðmið um íslensku, stærðfræði og erlend tungumál á 1., 2. og 3. þrepi.
Í skjölunum hér fyrir neðan eru sett fram drög að viðmiðum um íslensku, stærðfræði og erlend tungumál á 1., 2. og 3. þrepi. Þar er gert ráð fyrir að nemendur sem staðist hafa lokamarkmið grunnskólans í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku þá hafa þeir náð hæfni á þrepi eitt. Fyrir þessa nemendur eru fyrstu áfangar í framhaldsskóla á öðru hæfniþrepi. Nemendur sem hefja nám í t.d. þýsku, frönsku eða spænsku taka sína fyrstu áfanga á hæfniþrepi eitt. Stærðfræði nemenda á raungreinabrautum er að mestu á þriðja hæfniþrepi.
Lærdómsviðmið
- Erlend mál útfærsla 1- lærdómsviðmið (PDF)
- Erlend mál útfærsla 2 - lærdómsviðmið (PDF)
- Íslenska útfærsla 1 - lærdómsviðmið (PDF)
- Íslenska útfærsla 2 - lærdómsviðmið (PDF)
- Stærðfræði útfærsla 1 - lærdómsviðmið (PDF)
