Drög að hæfniviðmiðum

Veturinn 2008-9 unnu átta rýnihópar að gerð viðmiðaramma fyrir kjarnagreinar. Sex þeirra hafa skilað tillögum. Það eru rýnihópar um stærðfræði, erlend tungumál, íslensku, sjúkraliðnám, matreiðslunám, rafvirkjanám og húsasmíði. Rýnihópur um nám vélvirkja mun skila tillögum í september. Auk þess hefur verið unnið að gerð viðmiðaramma fyrir iðnmeistarapróf sem kynntur verður í haust.

Rýnihóparnir voru beðnir sérstaklega að vinna hæfniviðmiðin inn í töfluna um almenn lærdómsviðmið, gæta þess að gera viðmiðin eins víð og hægt væri, forðast nákvæma inntaksbindingu, forðast endurtekningar og gæta að notkun sagna í viðmiðum sem tengjast þekkingu, færni/leikni og hæfni. Þannig voru hóparnir hvattir til að nota sagnirnar:

  • að beita, flokka, meðhöndla í tengslum við færni/leikni
  • að skilja,kunna, þekkja í tengslum við þekkingu
  • og hæfnislegar lýsingar s.s. bera saman, sjálfstæð vinnubrögð, meta, siðferðisvitund,
    í tengslum við hæfni

Menn hafa velt fyrir sér hvers konar framsetning nýtist hlutaðeigendum best og sjálfsagt er það mismunandi, eftir því hvort viðkomandi er að semja áfangalýsingu eða leggja drög að námsbraut. Hér eru settar fram tvær útgáfur að viðmiðaramma hverrar kjarnagreinar.

Menntamálaráðuneyti fagnar hvers kyns athugasemdum sem nýtast við áframhaldandi þróun viðmiðarammanna, bæði efnislegum og þeim sem lúta að framsetningu.

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.