Viðmiðarammi um lokapróf
Í nýjum lögum um framhaldsskóla er gert ráð fyrir að framhaldsskólar skipuleggi námsbrautarlýsingar og leggi þær fyrir ráðherra til staðfestingar eða synjunar. Heimilt er að tveir eða fleiri framhaldsskólar standi sameiginlega að gerð námsbrautarlýsingar og leiti staðfestingar á henni.
Ákveðið hefur verið að setja fram íslenskan viðmiðaramma sem tekur til alls náms á framhaldsskóla- og háskólastigi. Hér verður einungis fjallað um þann hluta rammans sem tekur til framhaldsskólans.
Þegar skóli býr til námsbraut skal hann skilgreina hana á tvo vegu.
-
Hvort námsbrautin er ætlað að skila nemandanum með hæfni á þrepi 1, 2, 3 eða 4.
-
Hvort brautin skilgreinist sem önnur lokapróf, próf til starfsréttinda eða stúdentspróf.
a) Námsbraut getur ekki fallið undir próf til starfsréttinda nema hún veiti nemanda löggild starfsréttindi.
b) Námsbraut á 3. þrepi getur haft fleiri skilgreiningar en eina, s.s. stúdentspróf og próf til starfsréttinda.
|
ÞREP 1 |
ÞREP 2 |
ÞREP 3 |
ÞREP 4 |
|||
|
Önnur lokapróf |
Önnur loka-próf |
Próf til starfs-réttinda |
Önnur loka-próf |
Próf til starfs-réttinda |
Stúdents-próf |
Viðbótarnám við framhalds-skóla |
Skilyrði til að braut geti kallast stúdentsbraut er að nemandi klári a.m.k. 45 framhaldsskólaeiningar í kjarnagreinum, þ.e. íslensku, stærðfræði og ensku. Menntamálaráðuneyti gefur út nánari viðmið um íslensku, stærðfræði og erlend tungumál á 1., 2. og 3. þrepi.
Framhaldsskólapróf fær sá nemandi sem stundað hefur 90 til 120 fein. nám. Framhaldsskólapróf er ekki bundið því að nemandi hafi klárað fyrirfram skilgreinda námsbraut.
Auk þess að skipuleggja námsbrautir geta framhaldsskólar skipulagt nám á þrepi 4 en það kallast viðbótarnám við framhaldsskóla. Nám á þessu þrepi getur falið í sér einstaka áfanga sem nemendur á 3. þreps námsbraut taka. Það getur einnig falið í sér skipulagða námsbraut sem framhaldsnám við námsbraut á 3. þrepi.
Hvert þrep felur í sér ákveðna hæfni sem nemandi skal búa yfir að námi loknu. Viðmið um þá hæfni hefur verið skilgreind óháð inntaki. Gera má ráð fyrir að það taki nemendur mislangan tíma að ná viðkomandi hæfni en eftirfarandi viðmið gilda um lengd námsbrauta.
