Tenging íslensks viðmiðaramma við evrópskan ramma

Evrópusambandið hefur sett fram lykilhæfniþættir (key competences) náms alla ævi (life long learning) um þá lágmarkshæfni sem hver og einn þarf að búa yfir til að geta verið virkur þjóðfélagsþegn. Þessir þættir eru tjáskipti á móðurmáli, tjáskipti á erlendu tungumáli, tölulæsi og færni í vísindalæsi, færni í upplýsingatækni, námshæfni, félagsleg og borgaraleg þekking og hæfni, menningarlæsi og tjáning auk þess að hafa þroskað með sér sköpunarmátt.

Árið 2007 gaf Evrópusambandið út Evrópskan viðmiðaramma um lokapróf á framhaldsskóla- og háskólastigi. (European Qualification Framework, EQF). Þessi rammi er byggður á skilgreiningum á hvaða þekkingu, færni og hæfni nemendur þurfa að sýna til að hafa lokið námi á hverju þrepi fyrir sig.

Rammanum er ætlað að auðvelda samanburð á menntun og prófgráðum milli landa. Miðað er við að lönd rammi inn eigin menntunartilboð og tengi síðan þann ramma (NQF) við hinn evrópska. Þjóðlegri útfærslu rammans er ætlað að kortleggja menntunartilboð viðkomandi lands og innbyrðis tengingar þannig að framboð og afrakstur menntunar verði gegnsærri. Enn fremur að leggja áherslu á hæfni nemenda við námslok.

Í töflu 1 er sett fram tillaga að tengslum milli íslensks og evrópsk viðmiðaramma um menntun og próflok. Þar sem íslenskir nemendur eru yfirleitt eldri þegar þeir hefja nám í framhaldsskóla er miðað við að þrep 1 í íslenska viðmiðarammanum taki til tveggja fyrstu þrepa Evrópusambandsins.

TAFLA 1

EQF

NQF

Þrep 8

Þrep 7, Doktorspróf

Þrep 7

Þrep 6, Masterspróf

Þrep 6

Þrep 5, Bachelor

Þrep 5

Þrep 4, Iðnmeistarapróf, ýmsar prófgráður

Þrep 4

Þrep 3, Önnur lokapróf, próf til starfsréttinda, stúdentspróf

Þrep 3

Þrep 2, Önnur lokapróf, próf til starfsréttinda

Þrep 2

Þrep 1

Þrep 1, Önnur lokapróf, próf til starfsréttinda

Tenglar:



 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.