Uppbygging námsbrauta

Uppbygging námsbrauta

Ákveðin sniðmát gilda við skipulag námsbrautar. Sniðmátunum er ætlað að tryggja að brautir skili nemanda með hæfni á þrepi 1, 2 eða 3. Þeim er einnig ætlað að auðvelda samanburð milli brauta, auðvelda mat nemenda milli skóla og gefa upplýsingar um skilyrði menntamálaráðuneytis við staðfestingu námsbrauta.

Sniðmátin tilgreina hversu stórt hlutfall námsbrautar skuli tilheyra hverju þrepi. Ákveðin vikmörk eru gefin til þess að gefa skólunum möguleika á að skipuleggja mismunandi brautir.

TAFLA 1

Námsbraut sem skilar nemendum með hæfni á 1. þrepi

Viðmið um mörk
hlutfall námsbrautar

90-120 fein. námsbraut

1. þrep

9/10

1

Allt nám brautarinnar má flokkast á 1. þrep

2. þrep

0

1/10

Allt að 1/10 hluta námsbrautarinnar má falla á 2. þrep

Námsbraut sem skilar nemendum með hæfni á 2. þrepi

Viðmið um mörk
hlutfall námsbrautar


120 fein. námsbraut

1. þrep

¼

½

30-60 fein.

2. þrep

½

¾

60-90 fein.

3. þrep

0

1/10

0-12 fein.

Námsbraut sem skilar nemendum með hæfni á 3. þrepi

Viðmið um mörk
hlutfall námsbrautar

Dæmi 1
180 fein. námsbraut

Dæmi 2
240 fein. námsbraut

1. þrep

1/6

1/3

30-60 fein.

40-80 fein.

2. þrep

1/3

½

60-90 fein.

80-120 fein.

3. þrep

1/6

1/3

30-60 fein.

40-80 fein.

4. þrep

0

1/10

0-18 fein.

0-24 fein.

Námsbraut sem skipulögð er á 4. þrepi

4. þrep

8/10 hluti námsins skal flokkast á 4. þrep


Nám og námsbrautir á 1. þrepi

Nám og námsbrautir á þrepi 1 snúast fyrst og fremst um almenna menntun sem er skilgreind í lykilhæfniþáttunum átta. Nám á 1. þrepi er einnig skilgreint í umfjöllun um kjarnagreinar.

Námsbraut á 1. þrepi er að jafnaði 1-4 annir (30-120 fein.) en hún getur verið allt að 8 önnum sem starfsbraut fyrir fatlaða. Uppbygging hennar skal fylgja sniðmátinu í töflu 1.

Nám og námsbrautir á 2. þrepi

Nám og námsbrautir á þrepi 2 einkennast af ákveðinni sérhæfingu, þ.e. sértækum þáttum þekkingar og færni. Nám á 2. þrepi er einnig skilgreint í umfjöllun um kjarnagreinar. Uppbygging námsbrauta skal vera í góðu samræmi við lokamarkmið náms og taka til þekkingar, færni og hæfni nemenda. Námsbraut á 2. þrepi er að jafnaði 3-4 annir (90-120 fein.). Uppbygging hennar skal fylgja sniðmátinu í töflu 1.

Nám og námsbrautir á 3. þrepi

Uppbygging námsbrauta skal vera í góðu samræmi við lokamarkmið náms og taka til þekkingar, færni og hæfni nemenda. Nám á 3. þrepi er einnig skilgreint í umfjöllun um kjarnagreinar. Skipulagðar námsbrautir á 3. þrepi skulu að jafnaði kenndar við það greinasvið sem nær upp á 3. þrep. Sem dæmi má nefna stúdentspróf þar sem erlend tungumál eru sérsvið og stúdentspróf þar sem húsasmíði er sérsvið. Mikilvægt er að fram komi hvaða réttindi námsbrautin felur í sér, hvað varðar næsta skólastig og störf almennt.

Valfrelsi nemenda við samsetningu náms á námsbraut ákvarðast af viðkomandi skóla. Miða skal þó við að nemendum gefist kostur á námsleið þar sem þeir skipuleggja sitt nám sjálfir og kallast sú námsleið almennt stúdentspróf eða almennt lokapróf. Þau réttindi sem ávinnast við þannig námsleið eru algerlega háð samsetningu námsins og mikilvægt að nemendum sé það ljóst. Þar skiptir leiðsögn náms- og starfsráðgjafa miklu máli.

Námsbraut á 3. þrepi er að jafnaði 5-8 annir (150-240 fein.). Ef námsbrautin er skilgreind til stúdentsprófs eða sem próf til starfsréttinda skal hún ekki vera minni en 180 fein. Uppbygging hennar skal fylgja sniðmátinu í töflu 1.

Nám og námsbrautir á 4. þrepi

Nám á 4. þrepi tengist meiri sérhæfingu og/eða hagnýtingu sérhæfingar

Nám á 4. þrepi er að jafnaði 1-4 annir (30-120 fein.) Uppbygging hennar skal fylgja sniðmátinu í töflu 1.

Lærdómsviðmið (learning outcome)

Viðmiðum um menntun og námslok á framhaldsskólastigi er skipt niður í fjögur þrep. Á hverju þrepi eru viðmið um þá þekkingu, færni og hæfni sem einkenna það þrep, og er stígandi í viðmiðunum frá þrepi eitt til þreps fjögur.

Við gerð námsbrautar skulu sett fram lærdómsviðmið námsbrautar. Námskrá námsbrautar inniheldur öll lærdómsviðmið námsbrautar, upptalningu á því námi/áföngum/áfangalýsingum sem nemandinn tekur til að öðlast tilsetta hæfni, lýsingu á námsefni, kennsluaðferðum og námsmati. Koma skal fram hvaða réttindi nemandi öðlast að námi loknu bæði hvað varðar frekara nám eða á starfsvettvangi, rökstuðningur fyrir uppbyggingu námsins og hvernig námið tryggir tilsettar hæfnikröfur.

Námskrána skal senda til menntamálaráðuneytis til staðfestingar. Nánar verður kveðið á um skilareglur á heimasíðu ráðuneytisins.

Þessi gögn eru enn á vinnslustigi




 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.