Um grunnskóla

Ný lög um grunnskóla eru grundvölluð á því meginsjónarmiði að börnum á skólaskyldualdri séu búnar kjöraðstæður til náms og þroska. Grunnskólar komi til móts við ólíkar þarfir barna og ábyrgð allra er að grunnskólastarfi koma sé skýr. Sköpuð séu skilyrði til að mæta kröfum um þekkingu og færni nemenda svo að menntun þeirra standist alþjóðlegan samanburð. Í lögunum er lögð áhersla á velferð barna og virkari þátttöku þeirra og foreldra í skólastarfi. Horft er til reynslunnar af flutningi grunnskóla til sveitarfélaga árið 1996 og leitast er við að styrkja enn frekar forræði og ábyrgð sveitarfélaga á rekstri skóla jafnframt því sem sjálfstæði grunnskóla er undirstrikað.


  • Sköpuð verði skilyrði fyrir að menntun barna á Íslandi geti orðið til fyrirmyndar á alþjóðavísu

  • Leitast við að tryggja velferð allra grunnskólabarna og jöfn tækifæri til náms

  • Stuðlað að því að nemendur og foreldrar þeirra eigi fjölbreytta valkosti um val á grunnskólum og tilhögun náms

  • Nám verði lagað að ólíkum þörfum nemenda og að þeir taki virkan þátt í skólastarfi

  • Aukið svigrúm og samfella á milli skólastiga og innan grunnskólastigsins

  • Grunnskólabörn fái viðeigandi stuðning í námi og sérfræðiþjónusta sé samhæfð með þarfir barnsins að leiðarljósi

  • Ábyrgð, réttindi og skyldur barna og foreldra skýrð

  • Sköpuð skilyrði fyrir aukinni þátttöku foreldra í skólastarfi og sterkari tengslum þeirra við stjórn skóla og skólasamfélagið almennt

  • Aukið forræði sveitarfélaga á skólarekstri og meira sjálfstæði skóla

  • Skýrari verkefnaskipting ríkis, sveitarfélaga og stjórnenda grunnskóla

  • Sú meginregla staðfest að menntun barna í grunnskólum sé gjaldfrjáls

  • Mat og eftirlit með skólastarfi eflt og stuðlað að framförum og umbótum í starfi grunnskóla



 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.