Um leikskóla

Í nýjum lögum um leikskóla er barnið, réttindi þess og velferð í fyrirrúmi. Lögunum er ætlað að skapa stutta og hnitmiðaða rammalöggjöf með samhljóm við löggjöf um önnur skólastig sem skapi skilyrði til að styrkja starf í leikskólum. Tekið er mið af breytingum á fjölskylduhögum, auknum fjölda íbúa sem eiga sér annað móðurmál en íslensku og menningarlegum fjölbreytileika.


  • Áhersla er lögð á velferð barna og að hagsmunir þeirra séu í fyrirrúmi

  • Réttindi og skyldur foreldra og barna skilgreind með skýrum hætti, þ.m.t. kæruréttur, réttur barna til sérfræðiþjónustu og upplýsingaskylda við foreldra

  • Leitast er við að koma til móts við breyttar aðstæður foreldra og barna vegna nýrra atvinnu- og þjóðfélagshátta og að samfélagið er í vaxandi mæli fjölþjóðlegt

  • Möguleikar foreldra til að hafa áhrif og að taka þátt í starfsemi leikskóla auknir m.a. með stofnun foreldraráða

  • Mat á skólastarfi og upplýsingagjöf um starfsemi leikskóla stórefld

  • Forræði sveitarfélaga og verkefnaskipting milli þeirra, ríkis og stjórnenda leikskóla skýrt

  • Ákvæði um rekstarleyfi leiksskóla skýrð og samrekstur skóla heimilaður

  • Aukin áhersla á faglegt starf leikskólum, þeir setji sér skólanámskrá og stofnaður nýr sjóður til að styrkja þróunarverkefni



 

Um vefinn

Ákveðið hefur verið að setja upp þennan vef til að hagsmunaaðilar geti fylgst með þróun þess umhverfis sem dreifstýrð námskrárgerð kallar á. Bæði verða hér almennar upplýsingar sem varða hugmyndafræði og þróun en einnig verða birt gögn sem nýst geta skólum í þeirri þróunarvinnu sem ný vinnubrögð og breyttar áherslur kalla á.

Til þess að upplýsingar um stöðu þróunarvinnunnar berist hratt út til skólasamfélagsins verða gögn birt sem enn eru á vinnslustigi.

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.