Spurt og svarað

FORELDRARÁÐ

Af hverju þarf foreldraráð við leikskóla?

Ábyrgð á velferð og öryggi barna hvílir fyrst og fremst á foreldrum þeirra. Leikskólabörn dvelja nú mun lengur í leikskólum dag hvern en áður tíðkaðist. Því er mikilvægt að foreldrar komi meira að mótun þess faglega starfs sem fram fer á leikskólunum.

Hvert er hlutverk foreldraráðs?

Hlutverk foreldraráðs er fyrst og fremst að fjalla um og gefa umsögn til leikskólans og nefndar sem fer með leikskólamálaflokkinn um skólanámskrá og aðrar þær áætlanir sem varða starfsemi leikskóla. Eiga sveitarfélög að greiða fyrir fundarsetu í foreldraráði?

Sveitarfélögum er í sjálfsvald sett hvort þau greiða fyrir fundarsetuna.

Er þá ekki lengur gert ráð fyrir foreldrafélögum?

Jú, ef foreldrar kjósa að hafa starfandi foreldrafélag samhliða foreldraráðinu er þeim slíkt heimilt.

GJALDTAKA

Mega sveitarstjórnir ráða því hvað leikskóladvöl kostar?

Já, að vissu marki. Við það skal þó miðað að gjaldið nemi ekki hærri upphæð en sem nemi meðalraunkostnaði við dvöl hvers barns í leikskólum á vegum sveitarfélagsins. Þetta ákvæði tekur ekki til sjálfstætt starfandi leikskóla nema kveðið sé á um slíkt í þjónustusamningi sem sveitarfélag gerir við aðila sem fengið hefur rekstrarleyfi.

 

 GRUNNSKÓLANÁM BARNA Á LEIKSKÓLAALDRI

Hindra lögin það að börn geti hafið grunnskólanám fyrr eða síðar séu fyrir því gild rök?

Nei en við ákvörðun um slíkt er afar mikilvægt að vanda vel til verka og horfa bæði til félagsþroska og námsframvindu barna. Að slíkri ákvörðunartöku verður að koma starfsfólk leikskóla og grunnskóla, foreldrar og þeir fagaðilar sem þurfa þykir.

   

HLUTVERK LEIKSKÓLA

Hvert er hlutverk leikskólans?

Hlutverk leikskólans er að tryggja börnum sem bestu náms-, uppeldis- og leikskilyrði sem eiga að koma til móts við einstaklingsþarfir hvers og eins og örva alhliða þroska hvers barns.

 

INNRITUN Í LEIKSKÓLA

Mega sveitarstjórnir setja sér reglur um innritun í leikskóla?

Já, í lögunum er að finna lagastoð til setningar reglna um innritun í leikskóla í sveitarfélaginu, enda njóti viðkomandi leikskóli fjárframlags frá sveitarfélaginu.

Á hvaða forsendum eru reglur um innritun í leikskóla settar?

Reglurnar eru settar með tilliti til aðstæðna barna og fjölskyldna þeirra sem og með tilliti til aðstæðna í leikskólum sveitarfélagsins.

  

KÆRUR

Hvaða mál eru kæranleg?

Leikskólalögin gera ráð fyrir að tilteknar ákvarðanir sem teknar eru af hálfu rekstraraðila leikskóla megi kæra til menntamálaráðuneytis. Hér er um að ræða að ráðuneytið fjalli um og meti hvort ákvörðun af hálfu sveitarstjórnar uppfylli skilyrði laga um ákveðna þætti. Mat sem framkvæmt er innan þess ramma sem lögin veita sveitarfélögum verður ekki endurskoðað af hálfu menntamálaráðherra.

Hafi sveitarfélag á hinn bóginn í mati sínu farið út fyrir lögbundinn starfsramma hefur ráðuneytið heimild til að ógilda viðkomandi ákvörðun í heild eða að hluta. Jafnframt er gert ráð fyrir því, þegar um er að ræða ákvörðun um rétt til sérstakrar aðstoðar og þjálfunar eða aðgang að leikskóla, að ráðuneyti geti í úrskurði sínum beinlínis lagt fyrir sveitarfélag að leysa úr viðkomandi máli með ákveðnum hætti.

Að öðru leyti er á því byggt að ráðuneytið hafi aðeins heimild til að fella ákvörðun úr gildi í heild eða að hluta. Þá getur ráðuneytið lagt fyrir sveitarfélag að taka mál til meðferðar að nýju eða staðfesta ákvörðun. Mál sem kæranleg eru skv. lögunum taka til réttar leikskólabarna til sérstakrar aðstoðar og þjálfunar, um aðgang að skóla og um gjaldtöku fyrir dvöl í leikskóla.

  

LANGVEIK BÖRN

Er tekið á réttindum langveikra barna í leikskólalögunum?

Ekki er tekið sérstaklega á rétti þessara barna umfram önnur leikskólabörn. Leikskólinn er fyrir öll börn og fá þau alla þá umönnun og menntun sem þurfa þykir óháð stöðu þeirra og sérþörfum eftir því sem tök eru á.

 

LEIKSKÓLASTJÓRAR

Hvert er hlutverk leikskólastjóra í málefnum sérfræðiþjónustu?

Leikskólastjóra ber að samræma innan hvers leikskóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra barna sem þarfnast sérfræðiþjónustu og eiga samráð við foreldra og félagsþjónustu sveitarfélags eftir því sem við á.

 

MAT Á SKÓLASTARFI

Er verið að auka mat og eftirlit með leikskólastarfi?

Með nýjum lögum er verið að stórefla þann þátt í leikskólastarfi sem tekur til hlutverks ríkis, sveitarfélaga, einstakra leikskóla, starfsfólks leikskóla, foreldra sem og leikskólabarna. Markmið mats og eftirlits á gæðum leikskólastarfs taka bæði til ábyrgðarskyldu skóla og fræðsluyfirvalda gagnvart þeim sem njóta þjónustu leikskóla. Þá er átt við þá hagsmuni sem þeir hafa af starfi hans og hins vegar er matinu ætlað að stuðla að umbótum í starfi skóla og í skólakerfinu í heild.

Hvert er hlutverk sveitarfélaga í eftirliti og gæðamati?

Í lögum um leikskóla er hlutverk sveitarfélaga gert skýrara og áhersla lögð á að saman fari ábyrgð á rekstri leikskóla sem og innra starfi. Lögin tryggja sveitarfélögum aðkomu að ytra mati á þeirri starfsemi sem fram fer í leikskólum og miða ákvæði kaflans um mat og eftirlit að því að sveitarfélögum sé gert kleift að fylgja eftir skólastefnu sinni og áherslum í leikskólastarfi.

Hvernig fara sveitarfélög með niðurstöður úr gæðamati?

Birta þarf niðurstöður opinberlega og gera þær þannig sýnilegar þeim sem hlut eiga að máli, hvort sem það eru sveitarstjórnir, aðrir rekstraraðilar, notendur þjónustunnar eða fræðsluyfirvöld.

Hvert er hlutverk ríkisins í eftirliti og gæðamati á leikskólastigi?

Greining og miðlun upplýsinga um starfsemi leikskóla á grundvelli upplýsinga sem ráðuneytinu hafa verið sendar frá sveitarfélögum og með sjálfstæðri gagnöflun. Gert er ráð fyrir framkvæmdaáætlun af hálfu menntamálaráðuneytis um fyrirhugaðar kannanir og úttektir á leikskólum eða einstökum þáttum leikskólastarfs.

 

NÁMSKRÁR

Af hverju kveða lögin á um að skilgreina eigi hæfniþætti á námssviðum leikskóla?

Ákvæðið tekur mið af alþjóðlegum viðmiðum um færni og þekkingu á öllum skólastigum. Gert er ráð fyrir að aðalnámskrá leikskóla kveði á um ákveðna hæfniþætti sem taki mið af aldri og þroska barna til að gera aðlögun barna að grunnskólanámi auðveldari.

Þýðir þetta að lögð verði meiri áhersla á formlegt nám í leikskólum?

Leikskólinn er bæði uppeldis- og menntastofnun og taka lögin mið af breyttum atvinnu- og samfélagsháttum og aukinni þekkingu og rannsóknum á sviði skólamála. Leikurinn verður áfram í fyrirrúmi og meginleið í námi og uppeldi í leikskólum.

Af hverju þarf hver leikskóli að móta sína eigin skólanámskrá?

Eitt af hlutverkum skólanámskrár er að gera leikskólastarf markvissara og sýnilegra. Mikilvægt er að sérstaða leikskóla komi fram í skólanámskrá og endurspegli mismunandi aðstæður í félagslegu og landfræðilegu tilliti. Þá er ekki síður mikilvægt að allt starfsfólk taki þátt í mótun hennar, t.d. á grundvelli mismunandi starfsreynslu og menntunar.

Hver er munurinn á námskrá, aðalnámskrá og skólanámskrá?

Almennt er námskrá leiðarvísir og rökstuðningur um nám og kennslu. Aðalnámskrár hafa ígildi reglugerðar og í þeim er kveðið nánar á um útfærslu laga og reglugerða. Þær kveða m.a. á um markmið og fyrirkomulag skólastarfs, kennsluskipan og viðmið um námskröfur og námsframvindu. Skólanámskrá skal vera nánari útfærsla á aðalnámskrá. Hún á jafnframt að lýsa skólastarfi hvers skóla, sérkennum hans, sérstöðu og staðbundnum aðstæðum. Öllum leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólaum er skylt að gefa út skólanámskrá samkvæmt lögum. Auk aðalnámskrár frá menntamálaráðuneyti gefa ýmsir aðilar út námskrár á ýmsum sviðum, t.d. opinberir aðilar og fræðsluaðilar en slíkar námskrár hafa ekki reglugerðargildi. Aðalnámskrár eru í sífelldri endurskoðun og eru breytingar kynntar með auglýsingu í Stjórnartíðindum hverju sinni. Frá og með árinu 2007 eru allar námskrár eingöngu gefnar út á rafrænu formi og birtar á vef menntamálaráðuneytis.

 

REKSTUR LEIKSKÓLA

Í hverju felst tilkynningaskylda sveitarstjórna um rekstur leikskóla?

Skyldan felst í því að tilkynna menntamálaráðuneyti um stofnun leikskóla sem og þegar rekstri þeirra er hætt.

Á hvaða formi má reka leikskóla?

Í formi sjálfseignarstofnunar, hlutafélags eða samkvæmt öðru viðurkenndu rekstrarformi.

Er heimilt að binda leyfi sveitarfélags við ákveðinn hámarksfjölda barna?

Já.

Með hvaða hætti taka lögin til sjálfstætt starfandi leikskóla?

Um rekstur sjálfstætt rekinna leikskóla gilda ákvæði laga um leikskóla þar sem við á og annað er tekið fram.

Hvaða skilyrði þarf að kveða á um í rekstrarleyfi?

Lögin gera ráð fyrir að skýrt sé kveðið á um réttindi og skyldur rekstraraðila sjálfstætt rekinna leikskóla, m.a. um þagmælsku starfsfólks leikskóla, húsnæði og fjölda barna, gerð skólanámskrár, skyldur rekstraraðila til eftirlits og gæðamats á leikskólastarfi o.fl.

Má reka saman fleiri en einn leikskóla?

Já, sveitarfélögum er heimilt að hafa með sér samvinnu um rekstur leikskóla, sbr. vii. kafla sveitarstjórnarlaga.

Má samreka leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla?

Já, sveitarfélögum er heimilt að reka saman leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla undir stjórn eins skólastjóra. Skal stjórnandi slíkrar stofnunar hafa leyfisbréf til kennslu á leik- eða grunnskólastigi. Hinn samrekni skóli skal starfa að öðru leyti samkvæmt lögum um viðkomandi skólastig. Ákvæðið er einkum tilkomið vegna skólahalds í dreifbýli.

 

SAMSTARF LEIKSKÓLA OG GRUNNSKÓLA

Af hverju er mikilvægt að sveitarstjórnir komi á samstarfi leikskóla og grunnskóla?

Tilgangur ákvæðisins um tengsl leikskóla og grunnskóla er að stuðla að góðu og nánu samstarfi og samvinnu milli leik- og grunnskóla til að aðlögun og undirbúningur leikskólabarna að grunnskólanámi verði sem best. Einnig er mikilvægt að grunnskólanám byggist m.a. á þeirri reynslu og menntun sem leikskólabörn hafa öðlast innan leikskólastigsins.

 

SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA

Í hverju felst sérfræðiþjónusta fyrir leikskóla?

Hún felst annars vegar í stuðningi við leikskólabörn og fjölskyldur þeirra og hins vegar í stuðningi við starf leikskóla og starfsfólk þeirra.

Hvar fer sérfræðiþjónusta fram?

Sveitarfélögum er skylt að tryggja öllum leikskólum sérfræðiþjónustu. Þeirra er að ákveða fyrirkomulag þjónustunnar og stuðla að því að hún geti farið fram innan leikskóla.

Er gert ráð fyrir sérstöku rými fyrir sérfræðiþjónustu í leikskólum?

Já, lögð er áhersla á að gert sé ráð fyrir sérstöku rými fyrir sérfræðiþjónustu.

Hafa réttindi leikskólabarna til sérfræðiþjónustu verið skert frá gildandi lögum um leikskóla?

Nei, í leikskólalögunum endurspeglast sú áhersla að leikskólinn sé mennta- og uppeldisstofnun án aðgreiningar sem beri að taka tillit til þess að börn koma í leikskólann á misjöfnum forsendum. Lögin gera ráð fyrir rétti barna til þeirrar þjónustu sem að mati viðurkenndra greiningaraðila og annarra sérfræðinga er þörf á. og Þjónustan skal fara fram undir handleiðslu sérfræðinga samkvæmt ákvörðun leikskólastjóra og sérfræðiþjónustu viðkomandi sveitarfélags. Meginmáli skiptir að þjónustan sé veitt. Þessi þjónusta getur verið af ýmsu tagi og fer eftir því um hvaða sérþarfir er að ræða hverju sinni. Þar af leiðir geta átt í hlut ýmsir aðrir sérfræðingar en þeir sem starfa á leikskólum og ber leikskólastjóra að samræma innan hvers leikskóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra barna.

Er tekið á réttindum langveikra barna í lögunum?

Nei, ekki sérstaklega umfram önnur leikskólabörn. Leikskólinn er fyrir öll börn og fá þau alla þá umönnun og menntun sem þurfa þykir óháð stöðu þeirra og sérþörfum eftir því sem tök eru á.

Hvert er hlutverk leikskólastjóra í málefnum sérfræðiþjónustu?

Leikskólastjóra ber að samræma innan hvers leikskóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra barna sem þarfnast sérfræðiþjónustu og eiga samráð við foreldra og félagsþjónustu sveitarfélags eftir því sem við á.

 

SKÓLAHÚSNÆÐI

Hvernig á skólahúsnæði og aðstaða í leikskólum að vera?

Meiri áhersla en áður er lögð á, að við byggingu og hönnun nýs leikskólahúsnæðis og við eldri leikskóla þar sem því verður við komið, sé tekið mið af þörfum allra leikskólabarna, starfsliðs og þeirrar starfsemi sem fram fer í leikskóla. Nánari ákvæði er að finna í reglugerð um starfsumhverfi leikskóla sem er í smíðum.

Er gert ráð fyrir sérstöku rými fyrir sérfræðiþjónustu í leikskólum?

Já, lögð er áhersla á að gert sé ráð fyrir sérstöku rými fyrir sérfræðiþjónustu.

Er breyting á rýmis- og barngildaviðmiðunum?

Já, gert er ráð fyrir að rýmis- og barngildaviðmiðanir, sem nú eru í reglugerð, verði felldar brott og í stað settar lágmarkskröfur um húsnæði og aðbúnað leikskóla í reglugerð um starfsumhverfi leikskóla. Lögð er áhersla á að við ákvörðun um fjölda barna í leikskólum verði horft til aldursdreifingar barna, samsetningar barnahópsins, sérþarfa leikskólabarna, lengd dvalartíma og skipulag húsnæðis.

 

SKÓLASTARF

Hvað þýðir það að leikskólastjóri eigi að gefa út sérstaka starfsáætlun árlega?

Það þýðir að auk skólanámskrár, sem á að fela í sér heildaryfirlit yfir starfsemi og markmið leikskóla, og tilgreina uppeldis- og námsáætlun hvers leikskóla, beri leikskólastjóri ábyrgð á að gefin sé út sérstök eða afmörkuð starfsáætlun sem miðast við hvert ár fyrir sig. Endurskoðun starfsáætlunar fer þá fram á hverju ári en endurskoðun skólanámskrárinnar, þar sem heildarmarkmið eru sett fram, sjaldnar.

Hvert er hlutverk Sprotasjóðs? Hver er ávinningur af breyttu fyrirkomulagi við stuðning ríkisins við þróunar- og nýbreytniverkefnum í leikskólum?

Hér er um aðra útfærslu að ræða frá því hlutverki sem Þróunarsjóður leikskóla hafði. Sprotasjóður er sameiginlegur með öðrum skólastigum en gegnir um leið víðtækara hlutverki, þ.e. að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá og stuðla að markvissum tengslum þriggja fyrstu skólastiganna. Þannig er m.a. hægt að styðja við ýmis námskeiðahöld til að fylgja eftir og styðja við nýbreytni í skólastarfi í tengslum við stefnu stjórnvalda.

Er verið að auka mat og eftirlit með leikskólastarfi?

Já, verið er að stórefla þann þátt leikskólastarfs sem tekur til hlutverks ríkis, sveitarfélaga, einstakra leikskóla, starfsfólks leikskóla, foreldra sem og leikskólabarna. Markmið mats og eftirlits á gæðum leikskólastarfs taka bæði til ábyrgðarskyldu skóla og fræðsluyfirvalda gagnvart þeim sem njóta þjónustu leikskóla og hagsmuni hafa af starfi hans og hins vegar er því ætlað að stuðla að umbótum í starfi skóla og í skólakerfinu í heild.

Hvert er hlutverk sveitarfélaga í eftirliti og gæðamati?

Í lögum um leikskóla er hlutverk sveitarfélaga gert skýrara og áhersla lögð á að saman fari ábyrgð á rekstri leikskóla sem og innra starfi. Lögin tryggja sveitarfélögum aðkomu að ytra mati á þeirri starfsemi sem fram fer í leikskólum og miða ákvæði kaflans um mat og eftirlit að því að sveitarfélögum sé gert kleift að fylgja eftir skólastefnu sinni og áherslum í leikskólastarfi.

Hvernig fara sveitarfélög með niðurstöður úr gæðamati?

Birta þarf niðurstöður opinberlega og gera þær þannig sýnilegar þeim sem hlut eiga að máli, hvort sem það eru sveitarstjórnir, aðrir rekstraraðilar, notendur þjónustunnar eða fræðsluyfirvöld.

Hvert er hlutverk ríkisins í eftirliti og gæðamati á leikskólastigi?

Greining og miðlun upplýsinga um starfsemi leikskóla á grundvelli innsendra upplýsinga frá sveitarfélögum og með sjálfstæðri gagnöflun. Gert er ráð fyrir framkvæmdaáætlun af hálfu menntamálaráðuneytis um fyrirhugaðar kannanir og úttektir á leikskólum eða einstökum þáttum leikskólastarfs.

Er heimilt að gera tilraunir með ákveðna þætti leikskólastarfs með undanþágu frá leikskólalögum?

Já, lögin gera ráð fyrir nýrri heimild til handa menntamálaráðherra að veita samþykki fyrir slíku.

 

SKÓLASTEFNA SVEITARFÉLAGA

Verða sveitarfélög að móta sér almenna stefnu um skólamál og hvað á hún að fela í sér?

Já. Hún á að segja fyrir um markmið sveitarfélaga í leikskólamálum og kortleggja leiðir að þeim markmiðum.

 

STARFSFÓLK LEIKSKÓLA

Hvaða lög gilda um ráðningarmál leikskólastjóra og starfsliðs leikskóla?

Sveitarstjórnarlög, auk fyrirmæla í samþykktum um stjórn sveitarfélaga eftir því sem við á, auk laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

Hvaða menntun þarf starfsfólk leikskóla að hafa?

Samkvæmt lögum nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla skal leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri og leikskólakennarar hafa leikskólakennaramenntun og skipa a.m.k. 2/3 hluta stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi leikskólabarna í hverjum leikskóla.

Hverjir mega ekki starfa í leikskólum?

Þeir sem gerst hafa brotlegir við ákvæði XXII. kafla almennra hegningarlaga eða skv. lögum um ávana- og fíkniefni eins og þar greinir.

Hvað felst í tilkynningaskyldu starfsfólks leikskóla í 7. gr. laga um leikskóla?

Skylda er að tilkynna, þrátt fyrir ákvæði um þagmælsku, til barnaverndarnefnda um tilvik þar sem grunur leikur á um að barn búi við vanrækslu eða ofbeldi sem stefni heilsu þess og þroska í hættu.

 

TÚLKAÞJÓNUSTA

Hvað þýðir ákvæðið um túlkun í 9. gr. laga um leikskóla?

Með ákvæðinu er leitast við að tryggja að foreldrar, sem ekki tala íslensku eða nota táknmál, fái túlkun á upplýsingum sem nauðsynlegar þykja til að nauðsynleg samskipti foreldra og starfsfólks leikskóla geti farið fram. Átt er við bæði munnlegar og skriflegar upplýsingar.

 

UPPLÝSINGARÉTTUR FORELDRA

Hvaða upplýsingar eiga foreldrar rétt á að fá frá leikskólum?

Allar þær upplýsingar sem stuðla að því að foreldrar geti gætt hagsmuna barna sinna og að góð samskipti geti átt sér stað milli heimila og skóla.

 

UPPLÝSINGASKYLDA

Hvaða upplýsingar eiga foreldrar rétt á að fá frá leikskólum?

Allar þær upplýsingar sem stuðla að því að foreldrar geti gætt hagsmuna barna sinna og að góð samskipti geti átt sér stað milli heimila og skóla.

Hvernig fara sveitarfélög með niðurstöður úr gæðamati?

Birta þarf niðurstöður opinberlega og gera þær þannig sýnilegar þeim sem hlut eiga að máli, hvort sem það eru sveitarstjórnir, aðrir rekstraraðilar, notendur þjónustunnar eða fræðsluyfirvöld.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.